
Gleðilegt ár 2009
2 janúar, 2009Bara engin færsla síðan í fyrra. Lífið hérna í Hlyngerðinu hefur verið með róglegasta móti undanfarið, ég og pabbi gamli erum “heimavinnandi” og látum aðra um að vinna fyrir okkur. Jólin og áramótin voru mjög góð og alls engin kreppujól. Ég og Inga gáfum fínar jólagjafir sem hún borgaði enda vinnandi kona, fengum einnig mjög góðar gjafir. Takk fyrir. Áramótin voru einnig góð bara rógleg stemning frameftir nóttu og svo nýárskaffi daginn eftir. Á nýju ári á svo að lifa heilsusamlegra lífi og framvegis verður aðeins borðað á sunnudögum til þess að ná þessum 1000L af jólaöli og 30kg af svínakjöti og öðru tilheyrandi í burtu.
mfg