
Laufa, laufa, laufa, laufa (syngist með vodafonelaginu)
16 desember, 2008Já sælir kæru vinir og félagar, á sunnudaginn var framkvæmdur sá gjörningur í kotinu sem gjarnan er kenndur við laufabrauðsgerð. Að því tilefni hef ég ákveðið að setja nokkrar línur niður á blað eða tölvuskjá (ég er ennþá að testa nýju HP) um það hvernig þetta fór nú allt saman fram. Sökum samkvæmis sem heimilisfrúin hélt á föstudagskvöldið og vinnubókar skrifarans mikla var ekki byrjað að skera fyrr en seinni partinn eða um 3. Byrjaði sú sem hér ritar á því að skreppa út í búð og kaupa blandað malt og appelsín og e-ð með því.
Þar sem um var að ræða 80 kökur og við vorum fjögur tókst einhverjum snillingnum (aka Inga) að finna út að það væru 20 á mann. Heimilisfaðirinn gaf það samt í skyn að hann myndi halda áfram að skera þar til allt yrði búið
(klappa hér). Þegar ég var búin að skera út fjórar kökur (af 20) fann sami snillingurinn út að þá væru 18 stk eftir…ehem… hljómaði skringilega en ekki þorði ég að mótmæla fyrr en eftir langa umhugsun enda mikið gáfufólk í fjölskyldunni.
Til að gera langa sögu stutta þá tók þetta ekki nema 3 tíma, glæsilegur útskurður plús steiking. Heimilsfaðirinn stóð við sitt og skar þar til allt var búið enda var frúin að sinna öðrum undirbúning mest allan tímann. Einhver styr stóð þó um blessað járnið en það þarf að skila því aftur á mitt borðið eftir notkun. Einhverjir myndu þó segja að þetta væru afturför frá því síðast en þá voru kökurnar 100. Hvað hefðu þá verið margar á mann?
mfg
það fer náttlega bara allt eftir því hvernig og hver reiknar dæmið:)