
Nú er bara að sjá hvað gerist
14 nóvember, 2008,,Viðgerðir og endurbætur verða í brennidepli á næstunni. Margar skemmtilegar minningar gleðja og umfram allt má margt af fortíðinni læra”. Þetta er stjörnuspáin mín á mbl.is. Hef heyrt að foreldrar mínir séu að fara að gera upp baðherbergið. Tími til kominn enda búið að plana í mörg ár og nýtt baðker stendur óhreyft út í bílskúr síðan 2006.
mfg
það er eilega spurning hvort að hægt sé að kalla þetta nýtt baðkar lengur??? enn svo sannarlega ónotað
Gangi ykkur vel í framkvæmdunum. Ég er viss um að “gamla” baðkerið á eftir að reynast vel. Hlakka til að sjá þegar allt er tilbúið.
Kveðja Guðrún R